Vel yfir 100 myndir hafa borist inn á Instagram-smáforritið undir hasstagginu #grindavikvetur en fresturinn til að senda inn mynd í Instagram-leikinn í tilefni menningarviku er fram að miðnætti í kvöld. Allar myndir undir myllu-merkinu eru þátttakendur í leiknum og fær sigurvegarinn vegleg verðlaun. Það verður síðan í opinberað í næsta tölublaði Járngerðar hvaða mynd hlýtur verðlaun auk þess sem "topp 10" myndir verða einnig birtar.