Brimketill á Reykjanesi prýðir nýtt frímerki sem Frímerkjasala Póstsins hefur gefið út. Frímerkið er í flokknum „Íslensk samtímahönnun IX – Landslagsarkitektúr“ og er „Sjálflímandi - 50g til Evrópu“
Um frímerkið segir:
Brimketill er sérkennileg laug í sjávarborðinu vestast í Staðarbergi skammt frá Grindavík og varð til vegna stöðugs núnings brims við hraunklettana en hraunið er þarna gróft og sprungið. Gerður hefur verið stígur yfir hraunið ásamt útsýnispalli þar sem laugin blasir við. Teiknistofan Landmótun vann að gerð stíga og útsýnispalla fyrir Reykjanes jarðvanginn. Aðalhönnuður verksins var Lilja Kristín Ólafsdóttir. Höfundur deiliskipulags var Óskar Örn Gunnarsson.
Brimketill er náttúrufyrirbæri á sunnanverðum Reykjanesskaga, skammt vestan við Grindavík, sem stundum gengur undir nafninu Oddnýjarlaug, í höfuðið á nátttrölli sem átti að hafa baðað sig þar ofan í. Um er að ræða ketil í berginu við ströndina sem myndast hefur á löngum tíma vegna rofs í berginu vegna stöðugs öldugangs, frostveðrunar og útsogs og myndað þannig stóran ketil í fjöruborðinu.
Staðsetning útsýnispallsins þar sem brimið skellur á ströndina gefur góða yfirsýn yfir sjálfan Brimketil og aðra minni katla sem eru að myndast og einnig fá gestir reglulega að upplifa á eigin skinni, kraft sjávar þegar brimgusurnar ganga yfir.
Fram kemur í Árbók félags íslenskra landslagsarkitekta að við hönnun á útsýnispalli hafi hugmyndin verið að fá pallana til að falla eins vel að náttúrunni og frekast væri unnt og að framkvæmdin væri að mestu leyti afturkræf. Stál var notað í útsýnispall, fljótandi stíga og tröppustíg og grindur úr fiber plasti. Bæði efnin séu endingargóð og slitsterk. Það skipti máli þar sem svæðið sé mjög krefjandi vegna ágangs sjávar og vinds.