Grunnskóli Grindavíkur auglýsir stöður grunnskólakennara og þroskaþjálfa.
Við Grunnskóla Grindavíkur eru lausar til umsóknar stöður umsjónarkennara á miðstig, íþróttakennara og þroskaþjálfa. Um er að ræða 50-100% störf.
Umsóknarfrestur er til 31. janúar.
Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með 515 nemendur í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni og lögð áhersla á að skapa námsumhverfi í samráði við foreldra þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.
Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans http://www.grindavik.is/grunnskolinn.
• Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla sem eru metnaðarfullir og góðir í mannlegum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200.