49. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 10. desember 2018 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson, formaður, Ólafur Már Guðmundsson, aðalmaður, Anton Kristinn Guðmundsson, aðalmaður, Lilja Ósk Sigmarsdóttir, aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður.
Fundargerð ritaði: Sigurður Ólafsson, .
Dagskrá:
1. Endurskoðun Aðalskipulags Grindavíkur 2010-2030. - 1501158
Fulltrúar EFLU, Eva Dís Þórðardóttir og Brynja Dögg Ingólfsdóttir komu á fund skipulagsnefndar, varðandi vinnu við aðalskipulag Grindavíkurbæjar.
Forkynningargögn verða lögð fyrir næsta fund skipulagsnefndar.
2. Hópsheiði 2 - Fyrirspurn um byggingu hesthúss - 1811092
Nefndin hafnar erindinu, þar sem að viðkomandi lóð er ekki ætluð undir hesthús.
Umsækjenda er bent á að nægt lóðarframboð er norðan við núverandi hesthús og á gildandi deiliskipulagi.
3. Miðgarður 2 - Umsókn um byggingarleyfi - 1812020
Skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki byggingaráformin. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi hönnunargögn berast.
4. Hraðfrystihús Þórkötlu - fyrirspurn um breytta notkun - 1812021
Skipulagsnefnd frestar ákvörðun um breytta notkun húsnæðisins þar til frekari gögn berast.
5. Stöðuleyfi - Hafnargata 15 - 1811102
Skipulagsnefnd samþykkir erindið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00.