Fyrr á árinu kom út bókin Þessi sárfátæka sveit - Lausafjáreign í Grindavík og Krísuvík 1773-1824 eftir Má Jónsson. Í bókinni rýnir Már sem er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands í skrár yfir eftirlátnar eigur sexán kvenna og 18 karla sem létust í Grindavík og Krísuvík undir lok 18. aldar og á fyrstu árum 19. aldar. Má þar m.a. nefna fatnað, bækur, búsáhöld og verkfæri. Við lesturinn myndast tilfinning fyrir brauðstriti alþýðufólks á örðugum árum, rúmri öld áður en uppgangur í atvinnulífi hófst fyrir alvöru.
Bókin er gefin út af Grindavíkurbæ í samstarfi við höfund og er til sölu á Bókasafninu. Hér má nálgast upplýsingar um opnunartíma safnsins í desember.