32. fundur afgreiðslunefndar byggingarmála haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa, fimmtudaginn 22. nóvember 2018 og hófst hann kl. 13:30.
Fundinn sátu: Íris Gunnarsdóttir, starfsmaður tæknisviðs og Pétur Bragason, byggingarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Pétur Bragason, Byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Víkurhóp 25-28- Umsókn um byggingarleyfi - 1811072
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
2. Víkurhóp 21-23 Umsókn um byggingarleyfi - 1811073
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
3. Fyrirspurn: sólskáli við Arnahraun 14 - 1808175
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:15.