Opið er fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurnesja, til og með 24. nóvember. Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og hlutverk hans er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Suðurnesjum, auk annarra verkefna sem falla að sóknaráætlun landshlutans.
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja auglýsir eftir styrkhæfum verkefnum árlega og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Suðurnesja 2015 - 2019 og reglum sjóðsins.
Umsóknareyðublaðið má nálgast hér.
Meðal þeirra verkefna sem hafa hlotið styrk undanfarin ár er uppbygging Bakka sem Minja- og sögufélag Grindavíkur er í forsvari fyrir. Hér að neðan er áhugavert kynningarmyndband sem Heklan lét vinna um það verkefni:
Um Sóknaráætlunina:
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa gert með sér samning um Sóknaráætlun Suðurnesja sem gildir frá árinu 2015 til 2019.
Markmið samningsins er að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans. Markmiðið er jafnframt að einfalda samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu opinberra fjármuna.
Með samningi þessum verða gerðar breytingar á fyrirkomulagi styrkveitinga. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur veitt styrki til menningarmála í gegnum Menningarsamning Suðurnesja og til þróunar- og nýsköpunarverkefna í gegnum Vaxtarsamning Suðurnesja.
Báðir þessir sjóðir eru nú sameinaðir í einn styrktarsjóð sem nú heitir Uppbyggingarsjóður Suðurnesja.
Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og hlutverk hans er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni, auk annarra verkefna sem falla að sóknaráætlun landshlutans. Sjóðurinn styrkir að jafnaði ekki meira en 50% af heildarkostnaði verkefna.