Jæja nú er lestrarátakinu okkar þett haustið lokið og hefur hún Lína langsokkur endurheimt fjársjóðinn sinn aftur með dyggri aðstoð frá Lautarbörnum, foreldrum og kennurum skólans.
Samtals voru lesnar 1653 bækur eða 37,729 blaðsíður, vel gert :). En við erum náttúrulega ekki hætt að lesa hvorki í leikskólanum né heima fyrir. Við munum síðan skella í annað lestrarátak þegar fer að vora og þá ætlum við að hjálpa honum Lubba að finna málbeinin sín.