Samstarf er milli Grindavíkurbæjar og Garðabæjar um að grunnmennta fagfólk í PMTO aðferðinni. Grunnmenntunin hófst með fyrstu lotu dagana 1.-2. október í Grindavík. Í hópnum eru ellefu starfsmenn frá leikskólum, einn frá skólaþjónustu, fjórir frá grunnskólum og einn frá barnavernd. Fyrsti dagur fór vel af stað. Þátttakendur voru fljótir að sjá gagnsemi aðferðarinnar í störfum sínum og tilbúnir að prófa nýjar leiðir. Kennarar eru Thelma Björk Guðbjörnsdóttir félagsráðgjafi í Garðabæ og Sigrún Pétursdóttir ráðgjafi barnaverndar í Grindavík.
PMTO aðferðin byggir á að efla fólk í nærumhverfi barna til að taka á hegðun barna. Þannig er fólk, sem vinnur með börnum og foreldrum þeirra, þjálfað í notkun og miðlun aðferðarinnar meðal samstarfsaðila. Grunnmenntun lýkur í febrúar á næsta ári með kynningum á verkefnum sem unnin hafa verið með aðferðinni á vettvangi.