Vikuna 1.- 8. október næstkomandi verður haldin Heilsu- og forvarnarvika á Suðurnesjum. Markmiðið með heilsu- og forvarnarvikunni er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingar geta staðið frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum með þátttöku allra bæjarbúa og því er leitað til ykkar.
Vonumst við til að fyrirtæki og stofnanir í bæjunum taki virkan þátt í verkefninu með því að bjóða bæjarbúum eða starfsfólki sínu upp á eitthvað heilsutengt þessa vikuna. Markmiðið er að heilsu-og forvarnarvikan sé fjölbreytt og höfði til sem flestra.
Það er von okkar að sem flest fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og íþrótta-og tómstundafélög á Suðurnesjum sjái hag sinn í þátttöku verkefnisins.
Skila þarf upplýsingum/dagskrá fyrir 21. september nk. til að vera með í viðburðardagatalinu.
Til að skila inn efni er hægt að senda á:
Sigríður Etna Marinósdóttir á netfangið setna@grindavik.is