Fulltrúar frá Vegagerðinni og verkfræðistofunni Eflu komu til fundar í Grindavík í gærmorgun að beiðni bæjaryfirvalda í Grindavík. Óskað hafði verið eftir þessum fundi til að fá upplýsingar um stöðu framkvæmda við Grindavíkurveg og til að koma sjónarmiðum Grindvíkinga á framfæri hvað varðar umferðaröryggi á veginum.
Hönnun framkvæmda er á lokastigi og fljótlega verður 1. áfangi boðinn út. Nær hann til vegarkaflans milli Seltjarnar og Bláa Lónsins þar sem akstursstefnur verða aðskildar með vegriði og um miðbik þeirrar leiðar verður framúraksturskafli. Tilgangurinn er sá að koma í veg fyrir framanákeyrslur bíla sem koma úr gagnstæðum áttum. Bætt umferðaröryggi á Grindavíkurvegi hefur verið mikið baráttumál heimamanna og það er mjög ánægjulegt að vita til þess að framkvæmdir fari senn að hefjast, en gangi allt að óskum er vonast til að það verði fljótlega í september næstkomandi.