Krakkarnir á leikjanámskeiðinu auglýsa eftir leikföngum sem nýtast bæði fyrir stelpur og stráka. Þau taka gjarnan á móti leikföngum sem hafa lent í geymslu og vantar einhverja nýja leikfélaga sem geta nýtt leikföngin í leik. Auglýst er t.d. eftir Lego-kubbum eða kapla-kubbum, Playmobil, Barbie- eða Bradz-dúkkum eða annað sem er geymt í geymslunni og bíður nýrra leikfélaga.
Tekið er á móti leikföngum í Þrumunni og ef enginn er á staðnum má hafa samband við Katrínu Lóu í síma 616-2532.