Vegna gífurlegra hæfileika hljóðfæraleikara hér í Grindavík verður ekki bara keppt í söng á 17. júní þetta árið heldur einnig í hljóðfæraleik. Ef þú spilar á hljóðfæri skaltu endilega skrá þig í keppnina.
Við hvetjum söngfuglana til að skrá sig einnig. Keppnin er fyrir aldursbilið 6-15 ára. Allra síðasti skráningardagur er í dag!
Veitt verða verðlaun í eftirfarandi flokkum:
• Besta tónlistaratriðið
• Besta framkoma
• Besti hljóðfæraleikur
• Besti söngur
Þáttakendur taka þátt í undirbúningi keppninar með viðtölum sem varpað verður á vef Grindavíkur. Umsjónaraðilar keppninar eru Sigga Maya og Íris Kristinsdóttir tónlistarkonur.
Upplýsingar og skráning fer fram í síma 898-4849
Athugið að þáttaka er háð samþykki forráðamanna.