Töluvert magn af óskilamunum liggur nú frammi í andyri bæði á Ásabraut og í Hópsskóla. Um er að ræða fatnað, skóbúnað, yfirhafnir, skólatöskur, íþróttatöskur og sitthvað fleira. Við hvetjum ykkur foreldra til að líta við og fara í gegnum munina og sjá hvort þið finnið eitthvað sem tilheyrir ykkar barni.
Eftir helgina verður farið með ósótta muni í fatasöfnun Rauða Krossins.