Í gær fór fram útskrift nemenda úr 10. bekk við hátíðlega athöfn. Nemendur, foreldrar og starfsfólk skólans fjölmenntu í salinn á Ásabrautina þar sem nemendur fengu afhentan vitnisburð auk þess sem hinar ýmsu viðurkenningar fyrir góðan árangur voru afhentar. Eftir athöfnina var boðið upp á léttar veitingar sem runnu ljúflega niður.
Stuttmyndagerð hefur verið árlegt verkefni hjá unglingastiginu og er samþættingarverkefni í ensku og tölvum undir stjórn Páls Erlingssonar. Í 3. sæti í keppninni um bestu stuttmyndina varð myndin Papas gang, í 2. sæti Don´t knock twice en besta myndin var valin The russian roulette en hana gerðu nemendur í 9. og 10. bekk.
Hér má sjá sigurvegara í stuttmyndakeppninni en þeir hlutu að launum góðgæti frá Nóa Siríus og gjafabréf frá Papas.
Á hverju ári tilnefna kennarar við skólann nemendur sem sýnt hafa mikla hjálpsemi, jákvæðni og dugnað í starfinu yfir veturinn. Í ár varð fyrir valinu Sindri Snær Gunnarsson í 10.E sem hlaut viðurkenninguna. Hann fékk að gjöf bókina Gæfuspor - gildin í lífinu eftir Gunnar Hersvein.
Sindri tekur hér við viðurkenningunni frá Guðlaugu Erlendsdóttur aðstoðarskólastjóra.
Fyrir frábær störf í myndmennt hlaut Inga Rún Svansdóttir viðurkenningu en hún er nemandi í 10.E. Inga Rún sýnir mikið frumkvæði og elju ásamt því að hafa hæfileika til sköpunar. Þess má geta að listaverk eftir Ingu Rún prýðir vegg við inngang skólans á Ásabrautinni.
Inga Rún með bókina Litagleði eftir Helgu Jóhannesdóttur sem hún hlaut í viðurkenningu fyrir frábær störf í myndmennt.
Þá hlaut Vignir Berg Pálsson viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda. Hann hefur verið mjög virkur þátttakandi í nemendaráði síðustu 3 árin og unnið þau verk sem hann hefur tekið að sér af mikilli kostgæfni. Í viðurkenningarskyni hlaut hann bókina Íslenskir málshættir og snjallyrði.
Fyrir góðan árangur í íþróttum veitir Ungmennafélag Grindavíkur farandbikar og skjöld til eignar. Íþróttakona Grunnskóla Grindavíkur var valin Una Rós Unnarsdóttir og íþróttamaður skólans var Jóhann Dagur Bjarnason. Bæði eru þau öflugir íþróttamenn og frábærar fyrirmyndir fyrir yngri nemendur skólans.
Jóhann Dagur og Petra Rós, móðir Unu Rósar, með verðlaunin en Una var fjarverandi þar sem hún var að keppa með meistaraflokki Grindavíkur í knattspyrnu.
Landsbanki Íslands hefur í mörg ár veitt verðlaun fyrir góðan árangur í stærðfræði og kom fulltrúi bankans, Irmý Rós Þorsteinsdóttir, til þess að afhenda þau verðlaun. Fyrir valinu urðu þær Jenný Geirdal Kjartansdóttir og Una Rós Unnarsdóttir sem báðar hafa lokið áföngum í framhaldsskólastærðfræði með góðum árangri.
Þá hlaut Jenný einnig viðurkenningu fyrir afbragðsgóðan árangur í íslensku á grunnskólaprófi og hlaut að launum Kvæðasafn Þórarins Eldjárns.
Fyrir framúrskarandi árangur í ensku hlaut Katrín Lilja Ármannsdóttir í 10.A viðurkenningu. Katrin Lilja hefur lokið tveimur áföngum í ensku á framhaldsskólastigi og staðið sig með strakri prýði. Í viðurkenningu fékk hún bókina The adventures of Sherlock Holmes eftir Sir Arthur Conan Doyle.
Fyrir frábæran árangur í dönsku hlutu Jenný Geirdal Kjartansdóttir og Anna Karen Björnsdóttir viðurkenningu. Þær eru báðar mjög vinnusamar, sýna elju og dugnað.
Jenný fékk réttritunarorðabók á dönsku sem danska sendiráðið gefur og Anna Karen íslensk danska, danska íslenska vasaorðabók.
Að lokum voru afhentar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í 10.bekk. Í ár hlutu þrír nemendur þessa viðurkenningu. Það voru þær Jenný Geirdal Kjartansdóttir, Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir og Telma Rún Ingvadóttir. Í viðurkenningu hlutu þær Nýju tilvitnanabókina en það var Kolbrún Bergþórsdóttir sem safnaði samann.
Hér fyrir neðan má síðan sjá fleiri myndir frá útskriftarhátíðinni.