Vorhátíð Grunnskóla Grindavík fór fram í Hópsskóla í dag. Nóg var um að vera bæði á skólalóðinni og í skólanum sjálfur en nemendur gátu valið um fjölmargar stöðvar til að dvelja á í lengri eða skemmri tíma.
Að ganga á stultum, pokakast, kubbur, golf, fótbolti, körfubolti, vinabandagerð, sápukúlur, stuttmyndir, dans og "Minute to win it" leikir var meðal þess sem boðið var uppá og svo fengu allir pylsu og svala í boði foreldrafélagsins.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá hátíðinni en fleiri myndir er að finna á Facebooksíðu Grunnskóla Grindavíkur.