Atvinna - Grunnskóli Grindavíkur

  • Fréttir
  • 18. maí 2018

Við Grunnskóla Grindavíkur eru eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:

Stöður umsjónarkennara á elsta stigi 

Umsóknarfrestur er til 22. maí en ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2018.   

Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með  500 nemendur í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni og lögð áhersla á að skapa námsumhverfi  í samráði við foreldra  þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.   Í framtíðarsýn skólans kemur fram að skólinn er lærdómssamfélag þar sem áhersla er á að allir nemendur hljóti góða menntun og fái hvatningu til náms í samræmi við þroska sinn og áhuga í öruggu og uppbyggilegu umhverfi.  Nemendur, starfsfólk og foreldrar eru virkir þátttakendur í lærdómssamfélaginu.   

Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans

•    Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla sem eru metnaðarfullir, og góðir í mannlegum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi.
•     Starfsmenn Grindavíkurbæjar hafa sett sér eftirfarandi gildi sem unnið er eftir í starfsemi bæjarins, þau eru jafnræði, jákvæðni, þekking, framsækni og traust.

Karlar, jafnt sem konur, eru hvattir til að sækja um starfið. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. 
Umsóknir  skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is 

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200.
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir