Atvinna - Heilsuleikskólinn Krókur

  • Fréttir
  • 15. maí 2018

Heilsuleikskólinn Krókur auglýsir eftir starfsfólki. Um er að ræða:

•    sumarstarf
•    leikskólakennara eða leiðbeinanda
•    þroskaþjálfa eða stuðningsfulltrúa

Heilsuleikskólinn Krókur er 4 deilda leikskóli með um 100 börn. Í stefnu leikskólans er lögð áhersla á heilsueflingu, frjálsan leik, umhverfismennt og jákvæð samskipti með áherslu á umhyggjusamt námsumhverfi. Við leggjum ríka áherslu á jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir og því leitum við að samstarfsfólki sem:

•    Er tilbúið að tileinka sér starfsaðferðir leikskólans
•    Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum
•    Er tilbúið að taka þátt í öflugri skóla- og starfsþróun
•    Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn

Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um

Nánari upplýsingar veita: Hulda Jóhannsdóttir skólastjóri eða Bylgja Héðinsdóttir aðst.skólastjóri í síma 426-9998.

Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://www.skolar.is/umsoknir/  (eyðublað fyrir neðan leikskólaumsóknir).


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir