Næstu daga verða einhverjar tafir á umferð um gatnamót Víkurbrautar og Gerðavalla, þar sem unnið er að uppsetningu hraðahindrunar við gatnamótin. Opið verður fyrir aðra akgreinina í einu á meðan framkvæmdum stendur, en hjáleið er merkt um Höskuldarvelli fyrir umferð í báðar áttir.
Framkvæmdin tekur mið af óskum íbúa sem búa á svæðinu en árið 2016 skiluðu þeir inn undirskriftarlista sem taldi 29 blaðsíður þar sem skorað var á bæjaryfirvöld að bregðast við miklum umferðarhraða í götunni. Siðastlið haust var hraðahindrun við gatnamót Blómsturvalla og Hólavalla sett upp, og er þessi framkvæmd hluti af sama verkefni. Einnig verður sett upp hraðahindrun í Efstahrauni, við göngustíginn á milli húsa 21 og 23