75. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 7. maí 2018 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Þórunn Svava Róbertsdóttir formaður, Klara Halldórsdóttir aðalmaður, Ámundínus Örn Öfjörð aðalmaður, Ómar Örn Sævarsson aðalmaður, Guðmundur Grétar Karlsson aðalmaður, Valdís Inga Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi, Sæborg Reynisdóttir áheyrnarfulltrúi, Eva Rún Barðadóttir áheyrnarfulltrúi, Rebekka Rós Reynisdóttir áheyrnarfulltrúi, Fríða Egilsdóttir leikskólastjóri, Inga Þórðardóttir skólastjóri, Guðbjörg Málfríður Sveinsdóttir grunnskólastjóri og Hulda Jóhannsdóttir leikskólastjóri.
Fundargerð ritaði: Ingibjörg María Guðmundsdóttir, Yfirsálfræðingur.
Dagskrá:
1. 1805006 - Skólapúlsinn: Foreldrakönnun 2017-2018
Skólastjóri Heilsuleikskólans Króks ásamt formanni matsteymis skólans mættu og gerðu grein fyrir helstu niðurstöðum úr foreldrakönnun Skólapúlsins vorið 2018. Skólastjóri og fulltrúi skólaþjónustu munu ræða um ágalla könnunarinnar við fulltrúa Skólapúlsins á vorfundi Skólapúlsins. Fræðslunefnd ítrekar mikilvægi þess að niðurstöður verði birtar opinberlega.
2. 1805005 - Skólapúlsinn: Foreldrakönnun Laut
Skólastjóri Lautar mætti og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum úr foreldrakönnun Skólapúlsins vorið 2018. Skólastjóri og fulltrúi skólaþjónustu munu ræða um ágalla könnunarinnar við fulltrúa Skólapúlsins á vorfundi Skólapúlsins. Fræðslunefnd ítrekar mikilvægi þess að niðurstöður verði birtar opinberlega.
3. 1711009 - Hvatningarverðlaun fræðslunefndar
Lögð fram drög að auglýsingu um tilnefningar til hvatningarverðlauna fræðslunefndar vorið 2018. Starfsmanni falið að auglýsa á heimasíðunni og senda á skóla og foreldrafélög.
4. 1805003 - Skólapúlsinn: starfsmannakönnun grunnskóla 2017-2018
Lögð fram skýrsla um niðurstöður á starfsmannakönnun Grunnskóla Grindavíkur. Grunnskólastjóri tekur áherslur inn í umbótaáætlun skólans varðandi niðurstöður ytra mats.
5. 1805010 - Grunnskóli: Val í framhaldsskóla
Lögð fram minnisblöð um val í Fjölbrautaskóla Suðurnesja um valgreinar sem standa til boða fyrir nemendur í grunnskóla.
6. 1711093 - Ytra mat Námsmatsstofnunar á Grunnskóla Grindavíkur
Skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur kynnti helstu niðurstöður ytra mats Menntamálastofnunar á skólanum. Endanleg skýrsla berst síðar. Kynningin sýnir mjög jákvæða þróun og góða stöðu Grunnskólans skv. ytra mati Menntamálastofnunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.