Samfylkingin býður kjósendum í kosningakaffi og spjall á morgun, laugardaginn 12. maí. Húsið opnar kl. 11:30 og verður opið til 13:45, svo að allir hafi tíma til að koma sér á völlinn og fylgjast með leik Grindavíkur og KR.
Frambjóðendur verða á staðnum til skrafs og ráðagerða, allir hjartanlega velkomnir. Aðstaða Samfylkingarinnar er að Víkurbraut 27.
Samfylkingin í Grindavík.