Hvatningarverðlaunin eru hrós til þeirra sem hafa sýnt framúrskarandi vinnu í skólastarfi og/eða fræðslustarfi í Grindavík. Þau eru einnig hugsuð sem staðfesting á að viðkomandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenningin nær til. Samþykkt var í vetur að auka jákvæða umfjöllun um skólastarf og/eða fræðslustarf í Grindavík með því að veita hvatningarverðlaun í fræðslumálum.
Auglýst er eftir tilnefningum að verkefnum innan Grindavíkurbæjar sem þykja skara fram úr og vera til eftirbreytni. Hægt er að tilnefna kennara, kennarahópa og starfsmenn í leikskólum, grunnskóla, tónlistarskóla, félagsmiðstöð og skólaseli í Grindavík. Allir geta komið tilnefningu á framfæri með því að senda inn upplýsingar á netfangið ingamaria@grindavik.is fyrir 25. maí 2018.
Fræðslunefnd ásamt áheyrnarfulltrúum velja úr tilnefningum á fundi fræðslunefndar og afhenda verðlaunin í lok skólaársins.