Nemendur á unglingastigi eru í valgrein sem heitir Viðburðarteymi. Viðburðarteymi starfar undir stjórn Rósu Kristínar Bjarnadóttur stuðningsfulltrúa. Teymið hefur séð um skreytingar fyrir viðburði innan skólans eins og haustball, jólaball, jólaskreytingar og árshátíð.
Í vali undanfarið hefur teymið verið að útbúa og skreyta með tilvísun í stefnu skólans sem er uppbyggingarstefnan. Listaverkið var sett upp í morgun og sýnir kjarnan í stefnunni sem er húsið (tákn fyrir öryggi), hjartað (þörfin fyrir að tilheyra), stjarnan (áhrifavaldið), fiðrildið (frelsið) og blaðran (gleðin).
Fallegt verk sem unnið er af nemendum prýðir því nú vegg við inngang í skólann okkar við Ásabraut