Á mbl.is í dag er ítarleg umfjöllun um fiskeldi Matorku sem stendur við Húsatóftir hér rétt vestan við Grindavík. Þar kemur m.a. fram að hér við Grindavík séu kjöraðstæður fyrir fiskeldi eins og þetta:
„Við lögðumst í ítarlega rannsóknarvinnu til að finna þann stað á Íslandi þar sem bestu aðstæðurnar væru fyrir fiskeldi á landi og leiddi það okkur til Grindavíkur.“ - Segir Árni Páll Einarsson, framkvæmdastjóri Matorku.
Þá kemur einnig fram í greininni að staðsetningin hér á Reykjanesi sé mjög góð vegna nálægðar við flugvöllinn og hér sé gott aðgengi að miklu vatni:
„Meðal þess sem gerir Reykjanesið að góðum stað fyrir fiskeldi er nálægðin við Keflavíkurflugvöll þaðan sem senda má nýslátraðan eldisfiskinn nánast hvert í heiminum sem er. „Jarðhitinn skiptir líka máli enda hægt að hámarka vaxtarhraða fisksins með því að hafa kjörhitastig á vatninu. Skipulagsmál eru einnig veigamikill þáttur, en mest af öllu munar um gott aðgengi að nægilega miklu magni af vatni. Fiskeldið þarf á grunnvatni að halda en ekki yfirborðsvatni og ekki að því hlaupið í mörgum landshlutum að fá nóg vatn til starfseminnar.““
Greinina má lesa í heild sinni á mbl.is - Fundu kjöraðstæður á Reykjanesi