Grindavík hefur lokið leik í Útsvarinu þetta keppnistímabilið, en liðið laut í lægra haldi fyrir Ísfirðingum síðastliðinn föstudag. Lokatölur urðu 50-35 eftir spennandi keppni. Viðureign Grindavíkur og Ísafjarðar var hluti af 8-liða úrslitum Útsvars, en Ísafjörður mætir Hafnarfirði í undanúrslitum.
Lið Grindavíkur að þessu sinni skipuðu þau Andrea Ævarsdóttir, Eggert Sólberg Jónsson og Páll Valur Björnsson. Þá var Lovísa H. Larsen einnig í liðinu í upphafi. Við þökkum þeim fyrir þeirra framlag í vetur og óskum þeim um leið til hamingju með ágætan árangur.