Söngskóli Emilíu verður með námskeið í Grindavík, sem hefst miðvikudaginn 2. maí 2018. Námskeiðið verður haldið einus sinni í viku í átta vikur, samtals átta kennslustímar og lýkur námskeiðinu með glæsilegum tónleikum nemenda. Námskeiðið fer fram á miðvikudögum í Kvikunni og síðasti tíminn er 20. júní.
Námskeið fyrir 1.-7. bekk kostar 23.900 kr.
Námskeið fyrir 8.-10. bekk kostar 26.900 kr.
10% systkinaafsláttur
Takmarkaður fjöldi kemst að og því er um að gera að skrá sig sem fyrst. Skráning fer fram á songskoliemiliu@gmail.com eða á Facebook-síðunni Söngskóli Emilíu.