Á félagsfundi Framsóknarfélags Grindavíkur í gærkvöldi var samþykktur framboðslisti fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Nýr oddviti Framsóknar í Grindavík er Sigurður Óli Þórleifsson. Sigurður Óli er 42 ára og starfar hjá Ísfelli sem sölustjóri Mustad beitingarvéla. Í öðru sæti er Ásrún Helga Kristinsdóttir. Ásrún er 43 ára og starfar sem grunnskólakennari en hún hefur einnig verið bæjarfulltrúi frá 2014. Í þriðja sæti er Guðmundur Grétar Karlsson. Guðmundur Grétar er 38 ára framhaldsskólakennari hjá Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Í fjórða sæti er Þórunn Erlingsdóttir. Þórunn er 37 ára íþróttafræðinur og grunnskólakennari. Hún var bæjarfulltrúi í Grindavík 2010-2012.
Á næstu vikum mun málefnavinna Framsóknar fara fram þar sem bæjarbúum gefst kostur á að hafa áhrif á stefnu flokksins fyrir komandi kosningar. Nánar má fræðast um frambjóðendur og áherslumál á Facebook-síðu flokksins.
Framboðslisti Framsóknar í Grindavík fyrir bæjar- og sveitarstjórnarkosningar 2018
1. Sigurður Óli Þórleifsson Sölustjóri
2. Ásrún Helga Kristinsdóttir Grunnskólakennari og bæjarfulltrúi
3. Guðmundur Grétar Karlsson Framhaldsskólakennari
4. Þórunn Erlingsdóttir Íþróttafræðingur og kennari
5. Anton Kristinn Guðmundsson Matreiðslumeistari
6. Justyna Gronek Gæðastjóri
7. Hallur Gunnarsson Formaður Minja- og sögufélags Grindavíkur
8. Valgerður Jennýjardóttir Leiðbeinandi
9. Páll Jóhann Pálsson Útgerðarmaður og bæjarfulltrúi
10. Sigurveig Margrét Önundardóttir Grunnskólakennari
11. Björgvin Björgvinsson Húsasmíðameistari
12. Theodóra Káradóttir Flugfreyja
13. Friðrik Björnsson Rafvirkjameistari
14. Kristinn Haukur Þórhallsson Eldri borgari