Grindavíkurkirkja auglýsir eftir starfskrafti í 50% stöðu kirkjuvarðar frá 15. maí 2018. Í starfi kirkjuvarðar felst almenn kirkjuvarsla, þátttaka í athöfnum kirkjunnar. Kirkjuvörður heldur utan um útleigu á safnaðarheimili og innkaup og þrif kirkjunnar. Kirkjuvörður þarf að búa yfir góðri framkomu, reglusemi og þjónustulund. Tölvukunnátta er nauðsynleg.
Skriflegar umsóknir sendist til Grindavíkurkirkju eða á netfangið: gudbjorg@grindavik.is
Upplýsingar í síma: 893-8626
Umsóknarfrestur er til 5, maí 2018. Öllum umsóknum verður svarað.
Sóknarnefnd og sóknarprestur