Menningarvika Grindavíkur verður formlega sett í Grindavíkurkirkju á morgun, laugardag, kl. 16:00. En í dag tökum við forskot á sæluna og eru nokkrir viðburðir á dagskrá. Kútmaga- og konukvöldin eru á sínum stað í kvöld en kl. 13:00 opnar sýning leikskólabarna í Kvikunni sem ber heitið Hjartsláttur. Sýningin verður opin alla Menningarvikuna milli kl. 12:00 og 16:00 og verða aðrar sýningar í Kvikunni jafnframt opnar og aðgangur ókeypis.
Dagksrá Menningarviku föstudaginn 9. mars
13:00-16:00 Kvikan, SALTFISKSÝNING opin gestum
13:00-16:00 Kvikan, SÝNINGAROPNUN HJARTSLÁTTUR – FÓLKIÐ SEM BYGGIR JÖRÐINA. Heilsuleikskólinn Krókur og Leikskólinn Laut sýna verk nemenda sinna
18:00 Íþróttahús, KÚTMAGAKVÖLD LIONSKLÚBBS GRINDAVÍKUR. Húsið opnar kl. 18:00 með sjávarútvegssýningu. Borðhald byrjar kl. 20:00.
20:00 Gjáin, HIÐ ÁRLEGA KONUKVÖLD KÖRFUNNAR haldið í Gjánni