Grindavíkurstúlkur gerðu góða ferð austur fyrir fjall í gær þegar þær lögðu Hamar í Frystikistunni í Hveragerði, en lokatölur urðu 63-66. Grindavík var undir í hálfleik, 32-24, en liðið sýndi góðan karakter í seinni hálfleik þar sem stelpurnar skoruðu síðustu 9 stig leiksins og fóru að lokum með sigur af hólmi. Ólöf Rún Óladóttir fór mikinn í liði Grindavíkur og skoraði 19 stig, þar af 12 úr þristum.
Deildarkeppninni í 1. deild er nú lokið en við tekur úrslitakeppni 4 efstu liðanna þar sem Grindavík mætir toppliði KR. KR fór taplaust í gegnum deildina en ekki mátti miklu muna að fyrsta tap liðsins kæmi í Grindavík í fyrrakvöld þar sem KR rétt marði sigur í lokin.