Grindavík lagði Val með nokkrum yfirburðum í Domino's deild karla í gærkvöldi, en lokatölur urðu 78-100, Grindvíkingum í vil. Grindvíkingar virðast vera með sjálfstraustið í botni þessa dagana og sást það vel í skotnýtingu liðsins en alls rötuðu 20 þriggjastigaskot ofan í körfurnar í gær, sem er það mesta sem sést hefur í deildinni í vetur.
Karfan.is fjallaði um leikinn:
Valur tók á móti Grindavík í næstsíðustu umferð Dominos deildar karla. Valur sem tryggði sér áframhaldandi sæti í deildinni í síðustu umferð hafði að engu að keppa nema kannski heiðrinum. Grindavík aftur á móti átti enn eftir að festa sæti sitt í deildinni en litlu munar á liðum í 5-8 sæti.
Gangur leiksins:
Nokkur hraði var í byrjun leiks og fékk leikurinn að fljóta án teljandi stoppa. Ingvi Þór setti þrjár þriggja stiga körfur strax í fyrsta leikhluta fyrir Grindavík. Valsarar virtust hálfkærulausir í brjun og ekki alveg klárir í bátana. Þeir voru samt ekki langt undan og setti skotin sín ágætlega. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 20-26 fyrir Grindavík.
Segja má að varnarleikur Vals hafi farið í góða kaffipásu í öðrum leikhluta. Vörnin hélt nákvæmlega engu, fengu á sig 33 stig og Grindvíkingar létu rigna þristum. Heilar sjö þriggja stiga körfur voru það sem Grindvíkingar settu í leikhlutanum og tókst því að fara með 42-59 forystu inní hálfleikinn.
Valsarar mættu með svæðisvörn að vopni í upphafi seinni hálfleiks. Grindavíkingar héldu áfram að salla niður þriggja stiga körfum gegn þeirri vörn. Strax í þriðja leikhluta voru Grindvíkingar búnir að jafna met þessa tímabils yfir flestar þriggja stiga körfur eða 18 talsins. Staðan fyrir lokafjórðunginn var 65-82 og róðurinn orðinn ans þungur fyrir Valsara.
Bæði lið fóru að kafa djúpt á bekki sína í fjórða leikhluta og leikhlutinn rann ljúft í gegn. Grindvíkingar silgdu þægilegum sigri 78-100 í Valshöllinni að lokum.
Hetjan:
Margir leikmenn Grindavíkur áttu gríðarlega góðan leik, það er næstum ósanngjarnt að draga einhvern úr liðinu en það þyrfti þá væri það Dagur Kár Jónsson. Hann endaði með 22 stig og 8 fráköst, hann lét boltann ganga vel og kom mikið boltaflæði í gegnum hann. J’Nathan Bullock var einnig sterkur og þá voru Þorsteinn og Ingvi öflugir.
Kjarninn:
Þessi leikur lyktaði langt útá bílaplan af því að annað lið leiksins hafði af engu að keppa en hitt að reyna að koma sér í gír fyrir úrslitakeppni. Það eru jákvæð teikn á lofti hjá Grindavík, leikgleðin og sjálfstraustið er að mæta aftur eftir brösugt tímabil. Grindavík gjörsamlega lék sér af svæðisvörn Vals og voru virkilega sterkir. Grindavík er í fimmta sæti deildarinnar þessa stundina og eru í fínni stöðu fyrir síðustu umferðina.
Lítið skal dvelja við frammistöðu Vals í þetta skipti, liðið var orkulaus og ekki tilbúið í bardaga. Valur hefur að engu að keppa og sást það langar leiðir í kvöld.
Viðtöl eftir leik: