Árshátíð yngsta stigs var haldinn í Hópsskóla í morgun föstudaginn 2. mars. Börnin eru búin að vera að æfa síðustu vikurnar og sýndu foreldrum og ættingjum afraksturinn í dag. Ýmislegt var til skemmtunar eins og dans, leikrit, söngur, blokkflautuleikur og vídeó. Í lokin var svo veisla í boði foreldra en allir komu með eitthvað kökuborðið. Börnin stóðu sig með sóma og allir skemmtu sér vel eins og meðfylgjandi myndir sýna. Fleiri myndir má sjá á Facebook-síðu skólans.