Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) býður upp á snjallsímaforrit (app) sem veitir vegfarendum tækifæri með einföldum hætti til að koma upplýsingum um holur í götum og vegum til veghaldara. Tilgangur FÍB með holuappinu er að auka öryggi vegfarenda í umferðinni og draga um leið úr tjónakostnaði bíleigenda og samfélagsins í heild.
Hér er hægt að nálgast Holu appið í Play store.
Holu appið væntanlegt fyrir Iphone, fáðu póst þegar Iphone útgáfan verður tilbúin, smelltu hér
Ath. Leitarorðið fyrir appið er "hola fib".
Holuappið lifnar með byrjunarskjá sem opnast í myndvél. Með smelli á myndavélatakkann er notandi færður á skjámynd þar sem hann merkir staðsetningu holunnar á korti. FÍB tekur á móti myndunum og áframsendir á viðeigandi veghaldara.
Mynd: Þarna er augljóslega engin hola!