Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða móttökuritara við Heilsugæsluna í Grindavík. Um er að ræða sumarafleysingar og tilfallandi afleysingar í framhaldinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur meðal annars í sér símsvörun og bókanir. Upplýsingagjöf og aðstoð við skjólstæðinga.
Hæfniskröfur
• Góð ensku og íslenskukunnátta
• Góð almenn tölvukunnátta
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
• Reynsla af móttökuritarastörfum er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Sótt er um starfið rafrænt á www.hss.is undir „laus störf“. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir geta gilt í sex mánuði.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2018
Nánari upplýsingar veitir:
Kolbrún Jóhannsdóttir, deildarstjóri á heilsugæslustöðinni í Grindavík, í síma 422-0750 eða í gegnum netfangið kolbrunj@hss.is