Grindvíkingar eru þessa dagana í nokkuð löngu fríi frá Domino‘s deild karla en hlé er á deildarkeppninni vegna undankeppni HM 2019. Íslenska landsliðið leikur heima gegn Finnum í kvöld en Ólafur Ólafsson er fulltrúi Grindavíkur í landsliði Íslands að þessu sinni. Leikurinn hefst kl. 19:45 í Laugardagshöll og verður einnig í beinni útsendingu á Rúv2.
Næsti leikur Grindavíkur er svo stórleikur gegn ÍR hér í Grindavík 1. mars.