Ökudagurinn er engu líkur í Hópsskóla. Allir koma í grímubúning eða náttfötum og njóta sín í leik fyrri hluta morguns. Toppurinn á deginum er svo alltaf þegar Harpa danskennari stjórnar dansi á sal. Þá er marserað af snilld og dansar sem börnin hafa lært í vetur dansaðir af mikilli innlifun. Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu grunnskólans.