Síðustu vikurnar hafa krakkarnir í 2. bekk verið að vinna með bækurnar um Herramennina. Efnið höfðaði mjög vel til þeirra og var vinnan afar skemmtileg.
Lögð var áhersla á ritun en áður en krakkarnir hófu þá vinnu voru ákveðnar Herramannsbækur lesnar með það að markmiði að auka orðaforða, kynna lýsingarorð og tengja við þeirra þekkingarheim. Þarna var verið að byggja ákveðnar stoðir fyrir ritunina.
Nemendur bjuggu allir til sína bók um annað hvort sinn herramann eða ungfrú. Ferlið var krefjandi fyrir krakkana en fyrst fylltu þau út hugtakakort sem þau síðan nýttu í sinni ritun. Söguna settu þau svo upp í tölvu, prentuðu út og myndskreyttu. Umsjónarkennarar voru ákaflega stoltir af nemendum sínum en þeir voru vinnusamir og vandvirkir.
Í lok vinnunnar buðu krakkarnir síðan til veislu þar sem þau lásu upp bækurnar sínar og kynntu verkefnið. Sérstaklega góð mæting var í útgáfuveislunni.
Þessi nálgun í kennslu byggir á vinnubrögðum sem lögð eru til grundvallar í Byrjendalæsi. Yngsta stig Grunnskóla Grindavíkur er að innleiða Byrjendalæsi en þessi nálgunlofar svo sannarlega góðu, gefur nemendum tækifæri til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni og vinnubrögð, markvissrar samvinnu og samræðna.
Fleiri myndir má sjá á Facebook-síðu Grunnskóla