Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Grindavík fyrir bæjarstjórnarkosningar
þann 26. maí 2018 fer fram laugardaginn 24. febrúar 2018
í húsi Sjálfstæðisfélagsins að Víkurbraut 25, frá kl. 10.00 - 17.00.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin og geta þeir sem vilja kjósa utankjörfundar haft samband við Heiðar Eiríksson s. 892-0169 eða Kristínu Gísladóttur s. 899-8004
Sjö frambjóðendur hafa gefið kost á sér og eru nöfn þeirra hér í stafrófsröð.
Birgitta Kárdóttir, gefur kost á sér í 2-3 sæti
Guðmundur Pálsson, gefur kost á sér í 3 sæti
Gunnar Ari Harðarsson, gefur kost á sér í 4-6 sæti
Hjálmar Hallgrímsson, gefur kost á sér í 1 sæti
Hulda Kristín Smáradóttir, gefur kost á sér í 5-7 sæti
Irmý Rós Þorsteinsdóttir, gefur kost á sér í 5-7 sæti
Jóna Rut Jónsdóttir, gefur kost á sér í 2 sæti
Fimmtudaginn 22. febrúar nk. verður opið hús með frambjóðendum. Sjálfstæðisfélagið býður öllum þeim sem hitta vilja frambjóðendur og kynnast þeirra áherslum í heimsókn í hús félagsins að Víkurbraut 25 milli kl. 20:00 og 22:00.
Kaffi og léttar veitingar verða á boðstólnum.
Allir velkomnir