Aðalfundur Rauða krossins í Grindavík verður haldinn miðvikudaginn 21. febrúar 2018 kl. 18:00 að Hafnargötu 13 (Rauða kross húsinu).
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra.
2. Skýrsla/greinargerð um starf deildarinnar.
3. Skoðaður ársreikningur lagður fram til afgreiðslu.
4. Framkvæmda og fjárhagsáætlun lögð fram.
5. Innsendar tillögur.
6. Kosning formanns.
7. Kosning stjórnar.
8. Kosning skoðunarmanna og varamanna þeirra.
9. Önnur mál.
Skoðunarmenn og varamenn þeirra skulu hafa þekkingu á reikningsskilum.
Þeir félagsmenn sem áhuga hafa á að bjóða sig fram til stjórnarsetu geta haft samband við formann deildarinnar,
Ágústu H. Gísladóttur í síma 823-1922 eða á netfangið tryllirgk@simnet.is
Allir hjartanlega velkomnir.
Stjórnin.