Á sunnudaginn næstkomandi er konudagurinn og var haldið upp á það í mörgum bekkjum grunnskólans í dag. Á bóndadaginn komu stelpurnar með veitingar fyrir strákana en nú var komið að þeim að endurgjalda greiðann.
Í hinum ýmsu bekkjum mátti sjá glæsileg hlaðborð þar sem borðin svignuðu undan kræsingunum. Strákarnir lögðu sig fram við að undirbúa allt sem best og höfðu greinilega lagt sig fram við baksturinn sömuleiðis.
Fleiri myndir frá deginum má sjá á Facebooksíðu Grunnskóla Grindavíkur.