Spæsnki framherjunn Juan Manuel Ortiz Jimenez (Juanma) hefur skrifað undir nyjan leikmannasamning við Knattspyrnudeild Grindavikur sem gildir út keppnistímabilið 2018. Þetta verður þriðja keppnistímabil Juanma á Íslandi með Grindavík en hann hefur alls leikið 32 leiki með liðinu og skorað 7 mörk. Hann glímdi við töluverð meiðsli á síðasta tímabili og er eflaust staðráðinn í að mæta tvíelfdur til leiks í ár og láta hressilega að sér kveða í Pepsi-deildinni.