Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í Grunnskóla Grindavíkur í dag og var mikið um að vera hjá nemendum. Nemendur á miðstigi hófu daginn í hinum ýmsu hópum þar sem hægt var að vera í íþróttahúsi, í Hópinu eða í föndri og forritun í skólanum.
Unglingastigið bauð síðan krökkunum í 4.-6. bekk að slá köttinn úr tunnunni og var mikið fjör enda myndi sá sem næði kettinum úr vinna pizzuveislu fyrir allan bekkinn. Allir gerðu sitt besta en það var að lokum 6.S sem stóðu uppi með pizzurnar.
Margir nemendur og kennarar mættu í búningum og var ansi broslegt um að lítast á göngum skólans í dag.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá því í dag.