Knattspyrnudeild UMFG og Jói Útherji halda kattspyrnunámskeið fyrir stráka og stelpur helgina 16. - 18. febrúar.
Með stolti kynnum við knattspyrnuskóla knattspyrnudeildar UMFG og Jóa Útherja 2018 fyrir 5.-3. flokk stráka og stelpna.
Mikil áhersla er lögð á að einstaklingurinn fái að njóta sín í knattspyrnuskólanum.
Unnið er í litlum hópum og er markmiðið að hver og einn fái góða innsýn í æfingaheim þeirra sem hafa atvinnu af því að stunda knattspyrnu. Skólinn er ekki síður fyrir markmenn en útileikmenn, enda boðið uppá sérstaka markmannsþjálfun.
Boðið verður upp á úrvals dagskrá sem inniheldur meðal annars:
Æfingar, fyrirlestra, mat, sund, skemmtun og fleira.
Gisting er í boði fyrir þátttakendur í 4.flokki og 3.flokki í Hópskóla.
Verð fyrir þessa þrjá daga er 10.000 kr.
Gestakennarar og fyrirlesarar:
Ólafur Kristjánsson þjálfari m.fl kk FH - Gunnar Borgþórsson yfirþjálfari og þjálfari m.fl kk Selfossi - Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari m.fl kvk Selfossi - Óli Stefán Flóventsson þjálfari m.fl kk Grindavík - Ray A. Jónsson þjálfari m.fl kvk Grindavík - Arngrímur Jóhann Ingimundarson yfirþjálfari yngri flokka Grindavíkur - Milan Stefán Jankovic þjálfari hjá Grindavík - Þorsteinn Magnússon markmannsþjálfari - Nihad Cober Hasecic þjálfari hjá Grindavík - Orri Freyr Hjaltalín þjálfari hjá Grindavík - Óli Baldur Bjarnason heilsunuddari og styrktarþjálfari - Leikmenn meistaraflokka Grindavíkur og margir fleiri.
Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið og því um að gera að skrá sig sem fyrst.
Nánari upplýsingar og skráning með nafni og kennitölu berist á netfangið addi@umfg.is fyrir 14. febrúar.