SÍBS, Hjartaheill, Samtök sykursjúkra og Samtök lungnasjúklinga í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, munu bjóða íbúum Reykjaness upp á ókeypis heilsufarsmælingu í febrúar undir merkjum "SÍBS líf og heilsa" verkefnisins. Mælingar verða í Grindavík á heilsugæslunni að Víkurbraut 62, föstudaginn 9. febrúar kl. 09-15.
Mælingarnar ná til helstu áhættuþáttta lífsstílssjúkdóma þar sem mældur er blóðþrýstingur, blóðsykur, blóðfita, súrefnismettun, mittismál og styrkur. Jafnframt gefst þátttakendum kostur á að svara spurningavagni um áhrifaþætti heilsu. Hjúkrunarfræðingur frá HSS verður á staðnum og veitir ráðgjöf og eftirfylgd.
Niðurstöður mælinga og spurningakönnunar verða í kjölfarið sendar á þátttakendur þar sem þeir geta séð stöðu sína í samanburði við aðra á lokuðu svæði með skráningu í gegnum island.is. Í kjölfarið verða unnar heildarniðurstöður úr landshlutanum og þær sendar samstarfsaðilum.