Crossfit Grindavík - námskeiđ ađ hefjast

  • Íţróttafréttir
  • 5. febrúar 2018

Nú í fyrsta sinn er í boði Crossfit í Grindavík í nýjum sal fyrir hópþjálfun sem staðsettur er á Ægisgötu 3, 2. hæð (fyrir ofan Veiðafæraþjónustuna). Byrjendur þurfa að ljúka 3 vikna grunnnámskeiði þar sem farið er yfir tækni og æfingar með reyndum þjálfurum. Að loknum 3 vikum taka síðan við aðrar 3 vikur þar sem iðkendur geta valið sér opna tíma úr stundatöflu.

Í febrúar verða 3 grunnnámskeið á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl (A) 06:00 (B) 17:15 (C) 18:15

Verð fyrir 6 vikna grunnnámskeið 19.990kr.

Fyrsti tími er fimmtudagurinn 8. febrúar

Skráning fer fram á Facebook Crossfit Grindavík eða á crossfitgrindavik@gmail.com
Greiðsla fyrir námskeið skal leggja inn á kt. 590717-0880 rnr. 0143-26-010750

 

Mars í Crossfit Grindavík

Í mars hefst opin stundatafla fyrir alla sem lokið hafa grunnnámskeiði hjá viðurkenndri Crossfit stöð. Skráning í tíma fer fram í gegnum "app" og er hægt að mæta eins oft í viku og hver og einn vill. Opnu tímarnir í mars eru eftirfarandi en lágmarks þátttaka þarf að nást í tíma annars gæti tíminn verðið felldur niður:

Iðkendur Crossfit Grindavíkur fá aðgang að lokaðri Facebook síðu þar sem er að finna upplýsingar um tíma á stundatöflu, aukatíma og/eða breytingar á útgefinni stundatöflu.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál