Vikuna 15. - 20. janúar fara fram foreldraviðtöl hjá nemendum sem stunda hjóðfæranám. Í foreldraviðtölum fá nemendur afhent miðsvetramat, þar fer fram umræða um námsframvindu, líðan nemanda og samvinnu heimilis og tónlistarskóla.
Gert er ráð fyrir að foreldraviðtölin fari fram í hljóðfæratíma nemenda, eða samkvæmt samkomulagi við kennara. Ef foreldrar komast ekki í heimsóknartíma eru þeir hvattir til að hafa samband við kennara símleiðis eða í tölvupósti til að fara yfir námsmat og verkefni vorannar.
Kennarar koma til með að boða foreldra í viðtal ásamt nemanda.