Nemendur tónlistarskólans héldu glæsilega jólatónleika sl. laugardag. Haldnir voru þrennir tónleikar og spiluðu nemendur fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá fyrir fullan sal af áhorfendum á öllum tónleikunum.
Á tónleikunum komu samtals fram um hundrað nemendur í fjölbreyttum tónlistaratriðum, t.d. í einleik, samspili, einsöng og söngdúett. Margir nemendur voru að taka sín fyrstu skref sem einleikarar og því ber að fagna.
Á Facebook-síðu tónlistarskólans má sjá myndir frá tónleikunum.