36. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 11. desember 2017 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Sigurður Guðjón Gíslason formaður, Þórir Sigfússon aðalmaður, Marta Sigurðardóttir aðalmaður, Erla Ósk Wissler Pétursdóttir aðalmaður, Ólafur Már Guðmundsson aðalmaður og Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Dagskrá:
1. 1712018 - Skotsvæði: fyrirspurn
Skotdeild Grindavíkur óskar efir svæði við Nesveg til afnota fyrir skotsvæði. Svæðið er í eigu Ríkisins og skilgreint í aðalskipulagi sem iðnaðarsvæði i8 og nær inn á hluta til á fjarsvæði vatnsverndar. Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
2. 1712025 - Norðurhóp 62: Umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Hannesi Sigurgeirssyni. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 3. hæða fjölbýlishúsi. Erindinu fylgja teikningar frá Rýma arkitektum dags. 27.11.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði í kafla 2.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 eru uppfyllt.
3. 1712024 - Norðurhóp 64: Umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Hannesi Sigurgeirssyni. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 3. hæða fjölbýlishúsi. Erindinu fylgja teikningar frá Rýma arkitektum dags. 27.11.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði í kafla 2.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 eru uppfyllt.
4. 1712022 - Norðurhóp 66: Umsókn um byggingarleyfi
Erindi frá Rýma arkitektum. Í erindinu er sótt um byggingarleyfi fyrir 3. hæða fjölbýlishúsi. Erindinu fylgja teikningar frá Rýma arkitektum dags. 27.11.2017. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út af byggingarfulltrúa þegar ákvæði í kafla 2.4. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 eru uppfyllt.
5. 1712026 - Verbraut 1: breyting á skipulagi
Hópsnes ehf. sækir um leyfi til breytingar á skipulagi á þann hátt að Verbraut 1 verði sameinuð við Verbraut 3 og lóðin verði skilgreind í deiliskipulagi hafnarsvæðis í staðinn fyrir gamla bæjarins. Skipulagsnefnd legggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaaðili fái heimild skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 1123/2010 til þess að hefja gerð breytingar á deiliskipulagi hafnarsvæðis, gamla bæjarins og aðalskipulagi þannig að lóðin Verbraut 1 falli inn í deiliskipulag hafnarsvæðis undir atvinnustarfsemi. Samþykkt með 3 atkvæðum, fulltrúar Samfylkingar og Framsóknar greiða atkvæði á móti.
6. 1712027 - Tangarsund 5: fyirspun um breytingu á byggingarleyfi.
Erindi frá H.H. smíði. Í erindinu er óskað eftir heimild til innanhúsbreytinga á húsnæði við Tangarsund 5. Skipulagsnefnd bendir á að ekki er heimild í lögum til að skrá matshluta sem húsvarðaíbúð en bendir fyrirspurnaraðila á að sækja um breytingu á byggingarleyfi vegna innanhúsbreytinga fyrir starfsmannaaðstöðu.
7. 1711009F -
Lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00