Aðventustund verður í kirkjunni í dag, annan sunnudag í aðventu, klukkan 18:00. Börn úr barna- og æskulýðsstarfi kirkjunnar flytja helgileik. Viktor Örn Hjalmarsson les jólasögu. Guðrún Lilja Dagbjartsdóttir syngur einsöng. Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur organista.