10. A sigurvegari í spurningakeppni unglingastigs

  • Grunnskólinn
  • 6. desember 2017

Í gær fóru fram úrslit í spurningakeppni unglingastigs þar sem mættust 9. K og 10. A. Bæði lið höfðu staðið sig frábærlega í keppninni til þessa og var mikil spenna í salnum í gær en allir bekkir á unglingastigi mættu til að fylgjast með úrslitaviðureigninni.

Viðureignin var æsispennandi allan tímann. 9. A leiddi mest allan tímann en 10. bekkingar voru þó aldrei langt undan. Í lokaspurningum munaði litlu sem engu á liðunum en það fór þannig að lokum að 10. A stóð uppi sem sigurvegari, 38-36.

10. A er því sigurvegari spurningakeppni unglingastigs árið 2017 og óskum við þeim innilega til hamingju með frábæran árangur og 9. A sömuleiðis með góða frammistöðu.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir